Námsstyrkir í Abu Dhabi í verkfræði

Masdar stofnunin í Abu Dhabi auglýsir í boði allt að 20 námsstyrki til meistaranáms í 8 verkfræðigreinum hjá The International Renewable Energy Agency (IRENA) stofnuninni við háskólann.

Námið við Masdar stofnunina er skipulagt í samvinnu við MIT háskólann í Bandaríkjunum og þurfa nemendur að uppfylla strangar kröfur sem gerðar eru til námsdvalar við þann skóla enda verður meistaragráðan einnig vottuð af MIT.

Nánari upplýsingar um styrkinn og þær námsbrautir sem í boði verða má fá á heimasíðu IRENA. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir til scholars@irena.org

Umsóknarfrestur er 31. maí 2012.