Markmið

Meginmarkmið Norrænu tungumálaráætlunar Nordplus á árunum 2012-2016 eru:

  • Að styrkja norrænanmálskilning og þá sérstaklega skilning á grannmálunum (dönsku, norsku og sænsku).
  • Að þróa efni, aðferðir og áætlanir um hvernig má bæta málkunnáttu og skilning á norrænum tungumálum innan allra skólastiga.

 

_____________________________________________________________________

 

Hvernig verkefni eru styrkt?

Hægt er að sækja um margvísleg verkefni sem tengjast norrænum tungumálum (svo sem námsefni, leiki, rannsóknir, fræðsla, ráðstefnur o.fl). Einnig er hægt að sækja um styrki til að stofna samstarfsnet á sviði norrænna tungumála. ATH. að styrkir til bekkjaheimsókna sem áður tilheyrðu Nordplus Sprog hafa nú verið fluttir yfir til Nordplus Junior.

Allir þeir sem starfa að norrænum tungumálum, svo sem skólar, félagasamtök, rannsóknastofnanir og einkafyrirtæki geta sótt um. En gerð er krafa um samstarf á milli a.m.k. þriggja samstarfslanda á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. (ef þú ert með áhugaverða hugmynd en vantar samstarfsaðila í öðrum löndum, vinsamlegast hafðu samband við Landsskrifstofu Nordplus á Íslandi sem getur aðstoðað þig í leit að samstarfsaðilum).

Nordplus tungumálaáætlunin er opin þátttakendum á Norðurlöndum og Eystrarsaltslöndum. Ath. þó að verkefnin geta einungis fjallað um Norræn tungumál.

Umsóknir skulu vera skrifaðar á dönsku, sænsku eða norsku.

nánari leiðbeiningar um þátttöku, skilyrði, tegund verkefna og fleira má finna í Handbók Nordplus

 

_____________________________________________________________________

 

 

Hvernig og hvenær er sótt um?

Næsti almenni umsóknarfrestur er 1. mars 2012

Nokkrar algengar spurningar um umsóknir í Nordplus

 

Öllum umsóknum verður að skila rafrænt í gegnum umsóknarkerfið ARS á slóðinni: http://ars.norden.org.  Leiðbeiningar um ARS á ensku er að finna í eftirfarandi PDF-skjölum:

ARS Brukervejledning (.pdf, 12 mb)

ARS User Guide (.pdf, 11 mb)

 

_____________________________________________________________________

 

 

Upplýsingar

Nánari upplýsingar fást hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, verkefnisstjórar fyrir Tungumála- og menningaráætlun Nordplus eru:

Sigrún Ólafsdóttir, sími 525 5855, sigrunol(hjá)hi.is
Karítas Kvaran, sími 525 4304, karitask(hjá)hi.is

Upplýsingar á dönsku er að finna á aðalsíðu Nordplus: www.nordplusonline.org/sca/sprog_kultur