Ploteus er vefgátt á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir þá sem hyggja á háskólanám í Evrópu. Hægt er að leita að upplýsingum á mörgum tungumálum, til dæmis íslensku og sendi inn fyrirspurnir um það sem ekki finnst í fljótu bragði.
Einnig eru þarna hagnýtar upplýsingar um húsnæðisleit, skatta- og tryggingamál, heilbrigðisþjónustu og annað sem mikilvægt er að þekkja til þegar ætlunin er að flytjast um lengri eða skemmri tíma til annars lands.
Ploteus leitargáttin verður þróuð áfram og mun smátt og smátt tengjast gagnagrunnum um menntamál í hverju landi fyrir sig og verður þannig hægt að finna þar upplýsingar um nám á framhaldsskóla- og jafnvel grunnskólastigi.
Hérna er tengill á heimasíðu Ploteus gagnabankans
Ath. að byrja verður á því að velja tungumál í horninu efst til hægri til þess að vefurinn sjálfur opnist.




